Eru allir ruglaðir?
Hvað er að gerast halda bara allir að það sé rugludagar þessa dagana? Veðurguðirnir allavega þar sem þeir senda okkur rigningu í staðin fyrir snjókomu. Vegna ruglings veðurguðanna verur dýraríkið líka ruglað, allavega sá ég áðnamaðk á töltinu í gærkveldi. Og svo er það hún mamma mín, hún ætlaði að skella sér á tónleika síðastliðin sunnudag, var búin að búa sig uppá og allt en var samt pínu hissa yfir því hve tónleikarnir hefðu verið lítið auglýstir. En konu greyið var bara viku á undan áætlun, eins gott að við fundum auglýiningu um þetta áður en hún lagði af stað. Hefði nú alveg vilja sjá hana þarna fyrir utan tóman tónleikastaðinn :)